12.09.2006 14:23:49 / Haddy

Halló Halló

Sælt veri fólkið.Það er víst komin tími til að skrifa nokkrar línur,þó ekki sé nema til að þakka þeim sem kvítta og skrifa í gestó.Það er bara allt mjög gott að frétta sem sagt engar fréttir góðar fréttir.Er bara að vinna svo skelli ég mér alltaf í góða kvöldgöngu sem er bara mjög gott mál.Var að passa Aron og Lenu um helgina Linda skellti sér út að heimsækja Davíð til London.Svo fórum við í bústað til Magga og Brynju þar síðustu helgi sem var frábært,þar vorum við Skordals systur að njóta okkar í djollý heitum með kalla börn og Hund,líka smá rauðvín.Ætla nú að vera duglegri að skrifa á næstuni.Kveðja og haldið áfram að kvítta ekki gefast upp á mér svoleiðis eru vinir.

» 6 hafa sagt sína skoðun

07.08.2006 00:31:23 / Haddy

Komin tími til að skella einu bloggi á !

Jæjja þið verðið nú að fyrirgefa mér þetta gott fólk , að hafa ekki skrifað svona lengi :S það er bara svo mikið búið að vera að gera í sumar þó að veðrið sé alls ekki búið að vera gott sumarveður , ekki nema nokkrir sólardagar , við erum búin að fara til krít og það var rosalega gaman  þannig að við sluppum nú í 2 vikur úr rigningunni  .. svo fórum við Helgi og Stubbur hringinn og skoðuðum landið það var líka rosalega gaman !

Í dag var bara slakað á heima til klukkan fjögur þá skruppum við Linda og krakkarnir niður í Hveragerði og fórum í eden svo var farið á selfoss að leita að eitthverjum matsölustað en þar var ekkert girnilegt svo að við enduðum bara aftur í hveragerði á stað sem heitir kiddi rót . Þar var nú alls ekki góður matur , pöntuðum pízzur og þær voru bara þunnur brenndur botn og eiginlega ekkert álegg , við kvörtuðum og fengum báðar pizzurnar fríar :)
Svo fórum við aftur í eden og keyptum ís fyrir krakkana ;)
Vorum að spá  í að skreppa þarna í þjórsádal en vorum bara orðnar svo þreyttar og svo var stubbur litli búin að vera svo lengi einn heima og við þorðum ekki að skilja hann lengur eftir heima !
En það er samt bara fínt að slappa af þessa helgi ;)
Svo var bara haldið heim og stubbur tók vel á móti okkur.
Aron verður hér í nótt. en Linda fór bara heim með lenu dögg.
Látum þetta bara gott í bili verð nú duglegri að skrifa og reyni að halda þessu öllu við svo að þið hafið nú eitthvað að lesa á þessu bloggi mínu , svo er komin tími til að breyta skoðanarkönnunninni og ætla að snúa mér að því núna og finna eitthverja skemmtilega og sniðuga spurningu til að spyrja ykkur ;) bæjó ;):haha:8)

Skordal 2 ! ( haddý )


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 01:02:01 / Haddy

Ekkeret nema sæla.

Hæ er lifandi bara að láta vita.kem með alla sólarsöguna um eða eftir helgi þetta er svo mikið hjá mér sem þarf að koma á framfæri.Kveðja þangað til.

» 9 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 17:04:37 / Haddy

Mikið í gangi

Sælt veri fólkið.Það er búið að vera nóg að gerast hér hjá okkur.Fengum bílinn okkar afhentan rétt fyrir sex á fimmtudag hann er æðislegur einu orði sagt.Síðan fórum við á Skagan að knúsa lítla drengin hennar Lísu og auðvitað alla hina líka,það var mikið gaman að koma þar eins og alltaf Linda og Ellý fóru með okkur líka.Á föstudag var Linda og pabbi og Mamma hér í heimsókn eftir að ég kom heim úr vinnu,mikið spjallað og gaman.Síðan fór Helga heim með Lindu og gisti þar svo það var bara rólegt hjá okkur Helga um kvöldið fórum í pottin og höfðum það notó.Svo vorum við Linda í pottinum allan laugardagin og sóluðum okkur þvílíkur lúxus,og um kvöldið komu öll börnin og fylgifiskar í mat sem voru 15 í allt og það var útilegustemming allir að borða á veröndini svo var nú ekki verra að Maggi Brynja Bimma og guðmunda komu líka og litu við svo þetta var bara orðið sæmilegasta ættarmót.Helga fór svo og gisti hjá Ellý þá nótt.Svo var Aron hjá okkur í gær svo kom Helgi og gisti í nótt,það er gott að hafa svona smá pásu af og til fyrir alla.Svo er húsbóndin búin að vera í garðinum í dag.Svo langar okkur að skreppa norður á Strandir til Diddu í vikunni áður en við förum út svona eina nótt.Gott að sinni kveðja.

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 22:52:48 / Haddy

Ömmusystir

Já sælt veri fólkið.Það er komin tími til að skrifa smá,eins og segir í fyrirsögn er ég orðin Ömmusystir,kannski við Skordal þurfum að fara að breita um nafn.Það er sem sagt mikið búið að gerast mætti á kosningarskrifstofuna á laugardags morgun síðan var farið á Skagan um hádegi þar sem ég var viðstödd fæðingu litla prinsins hennar Lísu.Vorum þarna Skordals systur í ljósmóðurs hlutverki sem var nú stórkostlegt einu orði sagt og Lísa mín svo dugleg að ég dáðist að.Þetta er fallegasta barn sem Ella amma hefur séð ný fætt.Síðan var haldið aftur í bæin eftir þennan stórkostlega dag farið aftur á kosningars og svo á kosningarvöku í rútu seinna um kvöldið rosa stuð fram eftir nóttu.Þetta er bara skrítið að vera ekkert í þessum slag lengur búið að vera mikið að heiman undanfarið.Svo vorum við að kaupa okkur nýjan bíl sem við fáum á fimmtudag það er Land Cruiser rosa flottur.Svo það verður nú brunað upp á Skaga á nýja bílnum strax um kvöldið reikna ég með.Svo er ég komin í frí á föstudag síðan Krít bara framundan.Bið að heilsa að sinni skrifa frekar fljótt aftur.

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 15:23:58 / Haddy

Skrif eftir smá hvíld

Þá er best að skrifa smá.Helga mín er búin að vera með eitthverja óþverra flensu núna í þrjá daga, en er nú heldur að lagast sem betur fer.Nú fara prófin á fullt hjá henni eftir helgi.Svo er ég nú að fara að vinna aftur á mánudag sem betur fer er orðin hundleið á að hanga svona heima,dagurinn er svo lengi að líða þó svo maður geti alltaf fundið sér eitthvað til dundurs.Lóa og Mæja komu hér í morgunkaffi á þriðjudag sem var voða gaman.Síðan fór ég á kosningar skrifstofuna í gær og verð þar með annan fótin fram að kosningum,þetta er svo mikið líf og fjör í kringum þetta allt saman.Svo fékk ég nú heldur betur sætt boðskort inn um lúguna í vikunni á því var mynd af litlum fallegum dreng,sem er nú reyndar að verða 50.ára eftir nokkra daga, og er þetta hann óli Brynjólfs frændi minn sem alltaf nær mér í aldri blessaður.Svo eru að koma barnabörnin mín úr Vesturberginu í pössun og verða hér í nótt foreldrarnir eru að fara í óvissuferð með tannlæknunum sem Ellý er að vinna með,svo það verður fjör hjá þeim og líka mér.Svo er ég farin að telja dagana í krítarferðina eins og börnin svo gott að komast svona í burtu af og til.Kveð að sinni elskurnar og það er allt í lagi að kvitta.

» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 00:13:32 / Haddy

Gott kvöld

Sælt veri fólkið.Þá er enn ein helgin á enda.Búin að vera fín helgi fékk hér í heimsókn þrjá unga pilta á laugardagskvöld son minn og hans vini,þeir voru að halda upp á sigur Framarana og Onni var að æfa sig að spila á gítarinn fyrir afmæli systir sinnar,það vara bara mjög gaman að fá þá aðeins í heimsókn,koma svo sjaldan,enda orðnir fjölskyldumenn,annað eða þegar þeir voru daglegir gestir hér áður.Svo var nú farið í þessa líka flottu veislu til hennar Lindu minnar í gærkvöldi, var 30.ára þessi elska ótrúlegt ég sem er svo ung.Það var víst rosa fjör hjá þeim og mikið spilað á gítarinn,ég fór snemma heim að passa börnin Helga var bara ein með þau á meðan ég fór í veisluna.Það er svona þegar allir eru samankomnir úr sömu fjölskyldu þá er erfitt að fá pass fyrir þessi kríli,enda bara notalegt að vakna hress með þeim í morgun.Svo var mér boðið í grillað læri hjá Mömmu og Pabba í kvöld sem var æði,þar voru líka Lísa og Bimma,Bimma var líka hjá mér í nótt.Svo var Maggi mágur nú fjarri góðu gamni í gær er með svo mikla síkingu á sterku pensilíni,vonandi fer honum að batna verður allavega að hlusta á læknirinn og liggja fyrir.Bara gott að sinni.Kveðja til þeirra sem detta í hug að lesa.

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 23:32:43 / Haddy

Tími á skrif

Sælt veri fólkið.Já afmælið hjá Vilhjálmi var meiri háttar fínt,hitti þar margan mannin og líka úr öðrum flokkum sem heiðruðu hann með sinni nærveru.Líka Ingibjörg Sólrún Dagur Stefán Steinun og fleiri.Síðan var ég bara að sóla mig úti í góða veðrinu svona fram yfir hádeigi, þá kom Onni og Lilja og borðuðu hér með okkur.Síðan var aðeins tekið til á bænum,svo kom Dæja eftir henni kom Freyja með sina litlu skvísu gaman að sjá þær.Svo kom Linda og börnin og við brugðum okkur af bæ og fórum á Pizza Hut fórum svo til Ellý og Magga afmælis barn sem átti reyndar afmæli í gær komum svo heim um tíu í kvöld þá biðu Pabbi og Mamma hér fyrir utan og stoppuðu smá hjá mér.Helga mín er að fara að keppa í handbolta í fyrramálið kl.0800.svo það er best að fara að halla sér.Þannig ég bara bíð góðrar nætur að sinni.Svo er ég líka að fara á fund í fyrramálið.

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 22:48:02 / Haddy

Allt í góðum gír

Sælt veri fólkið.Bara gott að frétta hér á bæ.Nú er hún Linda mín að verða 30.ára 30.apríl og ætlar hún að vera með veislu í tilefni þess alltaf eitthvað að hlakka til.Svo er hann Maggi R.líka 45.ára núna 27.apríl og Haraldur Afi og Örn mágur minn líka þann dag.Svo er ég boðin í 60.ára afmæli hjá Vilhjálmi okkar borgarfulltrúa á morgun svo það er nóg að gera bara að stunda veislur og fundi og þess háttar.Þetta verður að nægja að sinni þarf að hlusta á Helgu hún er að fara í próf á morgun.Kveðja.

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 00:34:21 / Haddy

Smá frétt

Gott kvöld.Það er komin ný könnun hjá mér.Er búin að vera róleg í dag fór í pottinn aftur í kvöld síðan í ljós endaði í kaffi hjá Dæju,svo ég er vel haldin núna.Og gleðilegt sumar öll sömul.Kveðja.

» 12 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 23:20:50 / Haddy

Þriðjudagur

Sælt veri fólkið.Þá eru þessir blessaðir páskar liðnir.Ég er nú í fríi og Helga var í fríi í dag en fer í skólan á morgun svo aftur frí svo skóli í einn dag svo helgarfrí.Aron var hér í nótt hjá okkur voða fjör hjá þeim Helgu.Síðan fór ég á stjórnar fund í dag hjá mínum flokki,nú er starfið okkar að fara á fullt ég er í kosningarstjórnini svo það verður nóg um fundi og fleira á næstuni.Svo erum við að opna kosningarskrifstofu í mjóddini á föstudag svo endilega komið þar sem flest og skemmtið ykkur með góðu fólki.Svo fór ég í pottin og var þar í nuddinu í nærri tvo tíma í kvöld,ekki veitir af að míkja sig upp.Gott að sinni. Kveðja og það má alveg skrifa í komment eða gestó.

» 6 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 00:36:45 / Haddy

Páskadagskvöld

Gott kvöld gott fólk.Þetta er nú bara búið að vera mikil leti á fólkinu ég held ég sé komin með svefnsíki sef til að verða tólf á dagin og sofnuð fyrir tólf á kvöldin borða þess á milli,hvar enda þessi ósköp.Við vorum boðin í steiktan fisk til mömmu og pabba í gærkveldi það var nú gott eftir allt kjötátið,en það birjaði aftur í dag var með matarboð sem í mættu mínir kæru foreldrar og sonur minn Onni og hans heittelskaða og þeirra barn Lilja.Þetta er búið að vera góður dagur og mikið át af páskaeggjum sem og mat.Annað bara allt gott en nú er kl.komin fram yfir miðnætti svo nú fer ég í rúmið og kærkomið mál.

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 00:25:02 / Haddy

Föstudagurinn Langi

Góða kvöldið gott fólk.Í gær var bara verið að taka því rólega við pöntuðum okkur kínamat.Síðan fóru stelpurnar í pottin svo komu tveir guttar og fengu líka að fara í pottinn með þeim.Svo komu Inga og Dæja hér og þá fór Inga með krökkunum út í körvubolta svo var spjallað aðeins og farið að sofa.Í dag er búið að vara rólegt smá undirbúníngur fyrir Kvöldmatinn.Helga og Hafdís fóru í keylu sem þeim fannst voða gaman.Svo mættu mamma og pappi prúðbúin í mat til mín um sex og stelpurnar voru líka, allir voru bara í góðum gír.Síðan þegar þau fóru horfði ég á eitt stikki bíómynd sem er bara frásögufærandi geri það sjaldan.Stelpurnar voru að koma inn úr boltaleik og eru vonandi orðnar þreittar eftir daginn þvílík örka í þessum dömum.Kveðja og gleðilega páska.

» 4 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 17:39:55 / Haddy

Páskar að detta inn

Sælt veri fólkið.Þá er mitt fólk meira og minna á faraldsfæti.Allir farnir í bústað eða til sjós.Mamma Pabbi Onni Helga Kr og Lilja mín eru þó heima til að borða með mér og halda mér selskap því án hans get ég nú ekki verið lengi.Svo má nú ekki gleyma Helgu minni og Hafdís mín verður hjá mér um páskana svo þetta er bara hið besta mál,við verðum bara hér og höldum okkar sumarbúðstaða stemmingu förum í pottinn og grillum og gerum eins og hinir.Ekki þar fyrir að allt fólkið sem fór í bústað bauð mér að koma,en mér finnst ég bara vera í bústað hér líka líður,alla vega vel heima.Kem með fréttir síðar gott í bili Kveðja og gleðilega páska allir sem þetta augum líta.

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 16:49:11 / Haddy

Smá fréttir

Best að láta vita aðeins af sér fyrir helgina.Ellý Maggi og familý komu hér og borðuðu með mér í gær.Helgi litli var veikur og var hér hjá ömmu í nótt sem var bara notó.Síðan er Linda að bjóða okkur og Ellý og Magga í Idol og heimabakaða pizzu eins og þær gerast bestar.Svo er Helgi að koma í land í kvöld og auðvitað elskulegur bróðir minn líka,gott að fá þá heim.Síðan er fermingin hjá Önnu á sunnudag og því miður kemst ég ekki til Madda því það er á sama tíma leiðinlegt það, langaði svo að sjá Ólöfu fríðu og allt fólkið.Gott að sinni veit ekki hversu dugleg ég verð meðan Helgi er heima að skrifa kemur í ljós.Kveðja.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4