Halló Halló
línur,þó ekki sé nema til að þakka þeim sem kvítta og skrifa í
gestó.Það er bara allt mjög gott að frétta sem sagt engar fréttir
góðar fréttir.Er bara að vinna svo skelli ég mér alltaf í góða
kvöldgöngu sem er bara mjög gott mál.Var að passa Aron og Lenu um
helgina Linda skellti sér út að heimsækja Davíð til London.Svo
fórum við í bústað til Magga og Brynju þar síðustu helgi sem var
frábært,þar vorum við Skordals systur að njóta okkar í djollý
heitum með kalla börn og Hund,líka smá rauðvín.Ætla nú að vera
duglegri að skrifa á næstuni.Kveðja og haldið áfram að kvítta ekki
gefast upp á mér svoleiðis eru vinir.
Komin tími til að skella einu bloggi á !
ekki skrifað svona lengi :S það er bara svo mikið búið að vera að
skruppum við Linda og krakkarnir niður í Hveragerði og fórum í eden
svo var farið á selfoss að leita að eitthverjum matsölustað en þar
var ekkert girnilegt svo að við enduðum bara aftur í hveragerði á
stað sem heitir kiddi rót . Þar var nú alls ekki góður matur ,
pöntuðum pízzur og þær voru bara þunnur brenndur botn og eiginlega
orðnar svo þreyttar og svo var stubbur litli búin að vera svo lengi
einn heima og við þorðum ekki að skilja hann lengur eftir heima
Látum þetta bara gott í bili verð nú duglegri að skrifa og reyni að
skoðanarkönnunninni og ætla að snúa mér að því núna og finna
eitthverja skemmtilega og sniðuga spurningu til að spyrja ykkur ;)
Ekkeret nema sæla.
eftir helgi þetta er svo mikið hjá mér sem þarf að koma á
framfæri.Kveðja þangað til.
Mikið í gangi
okkur.Fengum bílinn okkar afhentan rétt fyrir sex á fimmtudag hann
er æðislegur einu orði sagt.Síðan fórum við á Skagan að knúsa lítla
drengin hennar Lísu og auðvitað alla hina líka,það var mikið gaman
að koma þar eins og alltaf Linda og Ellý fóru með okkur líka.Á
föstudag var Linda og pabbi og Mamma hér í heimsókn eftir að ég kom
heim úr vinnu,mikið spjallað og gaman.Síðan fór Helga heim með
Lindu og gisti þar svo það var bara rólegt hjá okkur Helga um
kvöldið fórum í pottin og höfðum það notó.Svo vorum við Linda í
pottinum allan laugardagin og sóluðum okkur þvílíkur lúxus,og um
kvöldið komu öll börnin og fylgifiskar í mat sem voru 15 í allt og
það var útilegustemming allir að borða á veröndini svo var nú ekki
verra að Maggi Brynja Bimma og guðmunda komu líka og litu við svo
þetta var bara orðið sæmilegasta ættarmót.Helga fór svo og gisti
hjá Ellý þá nótt.Svo var Aron hjá okkur í gær svo kom Helgi og
gisti í nótt,það er gott að hafa svona smá pásu af og til fyrir
okkur að skreppa norður á Strandir til Diddu í vikunni áður en við
förum út svona eina nótt.Gott að sinni kveðja.
Ömmusystir
segir í fyrirsögn er ég orðin Ömmusystir,kannski við Skordal þurfum
að fara að breita um nafn.Það er sem sagt mikið búið að gerast
mætti á kosningarskrifstofuna á laugardags morgun síðan var farið á
Skagan um hádegi þar sem ég var viðstödd fæðingu litla prinsins
hennar Lísu.Vorum þarna Skordals systur í ljósmóðurs hlutverki sem
var nú stórkostlegt einu orði sagt og Lísa mín svo dugleg að ég
dáðist að.Þetta er fallegasta barn sem Ella amma hefur séð ný
fætt.Síðan var haldið aftur í bæin eftir þennan stórkostlega dag
farið aftur á kosningars og svo á kosningarvöku í rútu seinna um
kvöldið rosa stuð fram eftir nóttu.Þetta er bara skrítið að vera
ekkert í þessum slag lengur búið að vera mikið að heiman
undanfarið.Svo vorum við að kaupa okkur nýjan bíl sem við fáum á
fimmtudag það er Land Cruiser rosa flottur.Svo það verður nú brunað
upp á Skaga á nýja bílnum strax um kvöldið reikna ég með.Svo er ég
komin í frí á föstudag síðan Krít bara framundan.Bið að heilsa að
sinni skrifa frekar fljótt aftur.
Skrif eftir smá hvíld
óþverra flensu núna í þrjá daga, en er nú heldur að lagast sem
betur fer.Nú fara prófin á fullt hjá henni eftir helgi.Svo er ég nú
að fara að vinna aftur á mánudag sem betur fer er orðin hundleið á
að hanga svona heima,dagurinn er svo lengi að líða þó svo maður
geti alltaf fundið sér eitthvað til dundurs.Lóa og Mæja komu hér í
morgunkaffi á þriðjudag sem var voða gaman.Síðan fór ég á kosningar
skrifstofuna í gær og verð þar með annan fótin fram að
kosningum,þetta er svo mikið líf og fjör í kringum þetta allt
saman.Svo fékk ég nú heldur betur sætt boðskort inn um lúguna í
vikunni á því var mynd af litlum fallegum dreng,sem er nú reyndar
að verða 50.ára eftir nokkra daga, og er þetta hann óli Brynjólfs
frændi minn sem alltaf nær mér í aldri blessaður.Svo eru að koma
barnabörnin mín úr Vesturberginu í pössun og verða hér í nótt
foreldrarnir eru að fara í óvissuferð með tannlæknunum sem Ellý er
að vinna með,svo það verður fjör hjá þeim og líka mér.Svo er ég
farin að telja dagana í krítarferðina eins og börnin svo gott að
komast svona í burtu af og til.Kveð að sinni elskurnar og það er
allt í lagi að kvitta.
Gott kvöld
fékk hér í heimsókn þrjá unga pilta á laugardagskvöld son minn og
hans vini,þeir voru að halda upp á sigur Framarana og Onni var að
æfa sig að spila á gítarinn fyrir afmæli systir sinnar,það vara
bara mjög gaman að fá þá aðeins í heimsókn,koma svo sjaldan,enda
orðnir fjölskyldumenn,annað eða þegar þeir voru daglegir gestir hér
áður.Svo var nú farið í þessa líka flottu veislu til hennar Lindu
minnar í gærkvöldi, var 30.ára þessi elska ótrúlegt ég sem er svo
ung.Það var víst rosa fjör hjá þeim og mikið spilað á gítarinn,ég
fór snemma heim að passa börnin Helga var bara ein með þau á meðan
ég fór í veisluna.Það er svona þegar allir eru samankomnir úr sömu
fjölskyldu þá er erfitt að fá pass fyrir þessi kríli,enda bara
notalegt að vakna hress með þeim í morgun.Svo var mér boðið í
grillað læri hjá Mömmu og Pabba í kvöld sem var æði,þar voru líka
Lísa og Bimma,Bimma var líka hjá mér í nótt.Svo var Maggi mágur nú
fjarri góðu gamni í gær er með svo mikla síkingu á sterku
pensilíni,vonandi fer honum að batna verður allavega að hlusta á
læknirinn og liggja fyrir.Bara gott að sinni.Kveðja til þeirra sem
detta í hug að lesa.
Tími á skrif
fínt,hitti þar margan mannin og líka úr öðrum flokkum sem heiðruðu
hann með sinni nærveru.Líka Ingibjörg Sólrún Dagur Stefán Steinun
og fleiri.Síðan var ég bara að sóla mig úti í góða veðrinu svona
fram yfir hádeigi, þá kom Onni og Lilja og borðuðu hér með
okkur.Síðan var aðeins tekið til á bænum,svo kom Dæja eftir henni
kom Freyja með sina litlu skvísu gaman að sjá þær.Svo kom Linda og
börnin og við brugðum okkur af bæ og fórum á Pizza Hut fórum svo
til Ellý og Magga afmælis barn sem átti reyndar afmæli í gær komum
svo heim um tíu í kvöld þá biðu Pabbi og Mamma hér fyrir utan og
stoppuðu smá hjá mér.Helga mín er að fara að keppa í handbolta í
fyrramálið kl.0800.svo það er best að fara að halla sér.Þannig ég
bara bíð góðrar nætur að sinni.Svo er ég líka að fara á fund í
fyrramálið.
Allt í góðum gír
að verða 30.ára 30.apríl og ætlar hún að vera með veislu í tilefni
þess alltaf eitthvað að hlakka til.Svo er hann Maggi R.líka 45.ára
núna 27.apríl og Haraldur Afi og Örn mágur minn líka þann dag.Svo
er ég boðin í 60.ára afmæli hjá Vilhjálmi okkar borgarfulltrúa á
morgun svo það er nóg að gera bara að stunda veislur og fundi og
þess háttar.Þetta verður að nægja að sinni þarf að hlusta á Helgu
hún er að fara í próf á morgun.Kveðja.
Smá frétt
dag fór í pottinn aftur í kvöld síðan í ljós endaði í kaffi hjá
Dæju,svo ég er vel haldin núna.Og gleðilegt sumar öll sömul.Kveðja.
Þriðjudagur
fríi og Helga var í fríi í dag en fer í skólan á morgun svo aftur
frí svo skóli í einn dag svo helgarfrí.Aron var hér í nótt hjá
okkur voða fjör hjá þeim Helgu.Síðan fór ég á stjórnar fund í dag
hjá mínum flokki,nú er starfið okkar að fara á fullt ég er í
kosningarstjórnini svo það verður nóg um fundi og fleira á
næstuni.Svo erum við að opna kosningarskrifstofu í mjóddini á
föstudag svo endilega komið þar sem flest og skemmtið ykkur með
góðu fólki.Svo fór ég í pottin og var þar í nuddinu í nærri tvo
tíma í kvöld,ekki veitir af að míkja sig upp.Gott að sinni. Kveðja
og það má alveg skrifa í komment eða gestó.
Páskadagskvöld
fólkinu ég held ég sé komin með svefnsíki sef til að verða tólf á
dagin og sofnuð fyrir tólf á kvöldin borða þess á milli,hvar enda
þessi ósköp.Við vorum boðin í steiktan fisk til mömmu og pabba í
gærkveldi það var nú gott eftir allt kjötátið,en það birjaði aftur
í dag var með matarboð sem í mættu mínir kæru foreldrar og sonur
minn Onni og hans heittelskaða og þeirra barn Lilja.Þetta er búið
að vera góður dagur og mikið át af páskaeggjum sem og mat.Annað
bara allt gott en nú er kl.komin fram yfir miðnætti svo nú fer ég í
rúmið og kærkomið mál.
Föstudagurinn Langi
pöntuðum okkur kínamat.Síðan fóru stelpurnar í pottin svo komu
tveir guttar og fengu líka að fara í pottinn með þeim.Svo komu Inga
og Dæja hér og þá fór Inga með krökkunum út í körvubolta svo var
spjallað aðeins og farið að sofa.Í dag er búið að vara rólegt smá
undirbúníngur fyrir Kvöldmatinn.Helga og Hafdís fóru í keylu sem
þeim fannst voða gaman.Svo mættu mamma og pappi prúðbúin í mat til
mín um sex og stelpurnar voru líka, allir voru bara í góðum
gír.Síðan þegar þau fóru horfði ég á eitt stikki bíómynd sem er
bara frásögufærandi geri það sjaldan.Stelpurnar voru að koma inn úr
boltaleik og eru vonandi orðnar þreittar eftir daginn þvílík örka í
þessum dömum.Kveðja og gleðilega páska.
Páskar að detta inn
farnir í bústað eða til sjós.Mamma Pabbi Onni Helga Kr og Lilja mín
eru þó heima til að borða með mér og halda mér selskap því án hans
get ég nú ekki verið lengi.Svo má nú ekki gleyma Helgu minni og
Hafdís mín verður hjá mér um páskana svo þetta er bara hið besta
mál,við verðum bara hér og höldum okkar sumarbúðstaða stemmingu
förum í pottinn og grillum og gerum eins og hinir.Ekki þar fyrir að
allt fólkið sem fór í bústað bauð mér að koma,en mér finnst ég bara
vera í bústað hér líka líður,alla vega vel heima.Kem með fréttir
síðar gott í bili Kveðja og gleðilega páska allir sem þetta augum
líta.
Smá fréttir
familý komu hér og borðuðu með mér í gær.Helgi litli var veikur og
var hér hjá ömmu í nótt sem var bara notó.Síðan er Linda að bjóða
okkur og Ellý og Magga í Idol og heimabakaða pizzu eins og þær
gerast bestar.Svo er Helgi að koma í land í kvöld og auðvitað
elskulegur bróðir minn líka,gott að fá þá heim.Síðan er fermingin
hjá Önnu á sunnudag og því miður kemst ég ekki til Madda því það er
á sama tíma leiðinlegt það, langaði svo að sjá Ólöfu fríðu og allt
fólkið.Gott að sinni veit ekki hversu dugleg ég verð meðan Helgi er